Öllu flugi aflýst á Keflavíkurflugvelli – “Ekki hægt að athafna sig vegna veðurs”
Ekki heimilt að nota rana og slíkt á Keflavíkurflugvelli næstu klukkustundirnar og því er ekki hægt að athafna sig á vellinum vegna veðurs, segir talsmaður Icelandair.
Öllu flugi um völlinn hefur verið aflýst, en næsta skráða flug er um klukkan 21:00 í kvöld þegar flugvél á vegum Wizz Air frá Póllandi er væntanleg til lendingar.
Hægt er að fylgjast með upplýsingum um flug hér, eða á heimasíðum flugfélaganna.