Nýjast á Local Suðurnes

Olli árekstri á Þjóðbraut – Grunaður um akstur undir áhrifum með barn í bílnum

Frá vettvangi á Þjóðbraut

Tveir voru fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í gærmorgun eftir að árekstur hafði orðið með tveimur bifreiðum á Þjóðbraut, skammt austan við Reykjanesbraut.

Atvikið varð með þeim hætti að ökumaður annarrar bifreiðarinnar snéri sér við til að líta til með ungu barni sínu sem sat í aftursætinu. Við það lenti bifreiðin á öfugum vegarhelmingi og hafnaði á bifreið sem kom út gagnstæðri átt.

Ökumaður og farþegi síðarnefndu bifreiðinnar voru fluttir með sjúkrabifreið á HSS. Er lögreglumenn á Suðurnesjum ræddu við þann ökumann er var með barnið í bílnum vaknaði grunur um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð til skýrslutöku. Jafnframt var barnaverndarnefnd tilkynnt um málið.