sudurnes.net
Öll hópkennsla fellur niður í tónlistarskólanum - Local Sudurnes
Eftir stranga fundarsetu um helgina hefur komið tilskipum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga að öll hópkennsla falli niður í Tónlistarskólum/Skólahljómsveitum landsins meðan samkomubann er í gildi. Þetta þýðir að hljómsveita- og hópæfingar og tónfræðitímar falla niður í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Þetta á einnig við um alla tónleika sem voru á dagsskrá hjá skólans. Varðandi einkakennslu (hljóðfæra- og söngtímar) þá mega þeir eingöngu fara fram í Tónlistarskólanum í Hljómahöll. Kennarar skólans hafa ekki heimild til þess að kenna einkatíma í grunnskólum bæjarins og fara næstu dagar í það að endurskipuleggja stundaskrá allra þegar fyrirkomulag grunnskólanna liggur fyrir. Kennarar munu vera í góðu sambandi við sína nemendur og forráðamenn, segir í tilkynningu á Facebook-síðu skólans. Meira frá SuðurnesjumGul eldgosaviðvörun og útbreiðsla nýrrar kórónaveiru – Þetta er verið að gera á KeflavíkurflugvelliMagnús Scheving með fyrirlestur í tilefni HeilsuvikuLítið um takmarkanir eftir 4. maí – Allir geta mætt í skóla og íþróttirMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkAðeins átta gestir noti sundlaugina á sama tímaGóð tilboð, jólaglögg og fish´n´chips á Fjörugum föstudegiKlárir með varaafl komi til rafmagnsleysisNý lög um meðhöndlun úrgangs – Svona á að flokka!Vilja fá sem flesta í Bláa lónið – Gefa veglegan afslátt!Frískápur á Ásbrú