sudurnes.net
Ólga innan HSS - Óánægja með stjórnunarhætti nýs forstjóra - Local Sudurnes
Óanægja ríkir á meðal hluta starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) vegna stjórnunarhátta nýráðins forstjóra stofnunarinnar. Þannig herma heimildir Suðurnes.net að nokkrir starfsmenn, þar á meðal sérfræðingar hafi þegar sagt upp störfum vegna þessa. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skipaði Markús Ingólf Eiríksson forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í febrúar síðastliðnum, en hann er með doktorspróf í endurskoðun með áherslu á stjórnarhætti fyrirtækja og starfaði áður hjá endurskoðunarfyrirtækinu Ernst & Young. Óánægja starfsfólks snýr einna helst að ófaglegri stjórnun stofnunarinnar. Heilbrigðisráðuneytinu er kunnugt um ágreining innan stofnunarinnar og hefur forstjóranum verið gefinn kostur á að tjá sig um málið við ráðuneytið. Samkvæmt heimildum hefur hluti starfsfólks HSS sent heilbrigðisráðherra erindi þar sem lýst er yfir vantrausti á hinn nýráðna forstjóra. Margrét Erlendsdóttir, upplýsingarfulltrúi Heilbrigðisráðuneytisins, staðfesti að forstjóranum hafi verið gefinn kostur á að svara fyrir sig gagnvart ráðuneytinu en að frestur sem hann hefur til þess sé ekki liðinn. Hún hvorki játaði né neitaði að starfsfólk HSS hafi sent umrædda vantraustsyfirlýsingu á ráðuneytið í svari við fyrirspurn Suðurnes.net. Meira frá SuðurnesjumÁ annan tug skrifuðu undir vantraustyfirlýsingu á forstjóra HSSAK-47 árásarriffill og afsagaðar haglabyssur á meðal þess sem gert var upptæktEftirför lögreglu endaði á flugstöðvarbyggingunni – “Atburðurinn mjög alvarlegur”Fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum kvartar undan einelti lögreglustjóraGæsluvarðhald framlengt vegna andláts í Sandgerði – [...]