Ökuníðingi veitt eftirför á Reykjanesbraut – Mældist á 174 km. hraða
Ökumaður, sem mældist á 174 km. hraða á Reykjanesbraut sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglunnar á Suðurnesjum heldur hélt för sinni áfram. Honum var því veitt eftirför dágóðan spöl þar til bifreið hans var stöðvuð á móts við Seltjörn. Hann þurfti að greiða á annað hundrað þúsund krónur í sekt.
Tíu ökumenn til viðbótar hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum, þar af rúmlega helmingur erlendir ferðamenn.
Þá var óvenjumikið um að ökumenn legðu bifreiðum sínum ólöglega því níu voru staðnir að því. Einnig bar á því að fólk væri ökuréttindalaust undir stýri, sinnti ekki stöðvunarskyldu eða talaði í síma án tilskilins búnaðar.