sudurnes.net
Ökumenn með ýmislegt misjafnt á samviskunni - Local Sudurnes
Rúmlega tuttugu ökumenn hafa verið staðnir að of hröðum akstri í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sumir þeirra höfðu ýmislegt fleira en hraðaksturinn á samviskunni. Tveir höfðu til dæmis aldrei öðlast ökuréttindi. Einn til viðbótar ók sviptur ökuréttindum og var einnig undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Þá hafði lögregla afskipti af fimm ökumönnum til viðbótar við hraðakstursökuþórana, sem óku undir áhrifum vímuefna. Tveir voru ölvaðir og annar þeirra sviptur ökuréttindum. Þrír óku undir áhrifum fíkniefna, tveir þeirra sviptir ökuréttindum og sá þriðji á ótryggðri bifreið. Meira frá SuðurnesjumNíu stöðvaðir á negldum dekkjumEkið á konu inni í bílaþvottastöðSkítadreifari ýtti dráttarvél út af vegiÞrír á vespu sem ekið var á bifreiðKærðir fyrir að tala í síma við aksturÞrettán óku of hratt og tveir undir áhrifum fíkniefnaMeð allt niðrum sig í umferðinni – Þrír handteknirÞrír á einni vespu sinntu ekki stöðvunarmerkjum lögregluBílvelta á ReykjanesbrautUm 40 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur