Nýjast á Local Suðurnes

Ók réttindalaus með börnin í bílnum

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af í gær reyndist aka sviptur ökuréttindum. Í tilkynningu lögreglu segir að viðkomandi hafi að auki verið með tvo syni sína í bílnum. Barnaverndarnefnd var tilkynnt um atvikið.

Þá voru fáeinir ökumenn staðnir að hraðakstri. Sá sem hraðast ók mældist á 134 km. hraða á Reykjanesbrautinni þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund.

Eitthvað var um umferðaróhöpp um helgina en þau voru minni háttar og engin alvarleg slys urðu á fólki.