sudurnes.net
Ók of hratt undir áhrifum fíkniefna - Sviptur á staðnum - Local Sudurnes
Ökumaður sem ók eftir Reykjanesbraut í vikunni mældist á 167 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Auk hraðakstursbrotsins var uppi grunur um að hann væri undir áhrifum fíkniefna og var hann því færður á lögreglustöð og sviptur ökuréttindum á staðnum. Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært níu ökumenn til viðbótar fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum. Einn þeirra var grunaður um ölvun við akstur. Þá voru tveir ökumenn til viðbótar teknir úr umferð vegna gruns um ölvunarakstur og þrír vegna gruns um fíkniefnaakstur. Skráningarnúmer voru svo fjarlægð af fjórum bifreiðum, ýmist óskoðuðum eða ótryggðum. Meira frá SuðurnesjumFerðamaður á hraðferð stöðvaður af lögregluTólf kærðir fyrir hraðakstur – Sá sem hraðast ók fær 150.000 króna sektFær 90.000 króna sekt fyrir hraðakstur – Lögregla með klippur á loftiGripnir við að tala í síma án handfrjáls búnaðarGreiddi tæplega 70.000 króna hraðasekt á staðnumFimmtán kærðir fyrir of hraðan aksturHundrað þúsund kall í sekt fyrir hraðaksturÖkumenn í vikunni: Fullir á alltof miklum hraða og á óskoðuðum eða ótryggðum bílumÓk á 162 kílómetra hraða á ReykjanesbrautTekinn á 134 km/h á Reykjnesbraut