Nýjast á Local Suðurnes

Ók á vegrið á Reykjanesbraut – Tveir ökumenn léku ljótann leik

Betur fór en á horfðist þegar ökumaður ók bifreið sinni utan í vegrið á Reykjanesbraut fyrr í vikunni með þeim afleiðingum að hún festist við vegriðið og var hún óökufær. Þurfti dráttarbifreið til að fjarlægja hana. Tveir voru í bifreiðinni og sluppu þeir án meiðsla. Ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Þá léku tveir ökumenn þann ljóta leik að aka á bifreiðir og stinga síðan af.

Skráningarnúmer voru fjarlægð af fimm bifreiðum sem ýmist voru óskoðaðar eða ótryggðar.