Ók á móti einstefnu í leit að Pokémonum
Lögreglan á Suðurnesjum biður fólk að fara varlega í leit sinni að Pokémonum, en fyrsti ökumaðurinn á slíkum veiðum var stöðvaður þegar hann ók á móti einstefnu á Suðurgötu um helgina.
Lögreglan birti eftirfarandi kafla, orðrétt, úr kerfum embættisins, á Facebook-síðu sinni.
„Ökumaður bifreiðarinnar XX-XXX var stöðvaður á Ránargötu í Reykjanesbæ eftir að hafa ekið á móti einstefnu á Suðurgötu. Ökumaður kvaðst hafa verið að aka um með unnustu sinni í leit af Pokemonum og hafi hann ekki verið alveg að fylgjst með umferðamerkjum. Ökumaður játaði brotið og staðfesti vettvangskýrslu með undirskrift sinni“