Nýjast á Local Suðurnes

Ók á 162 kílómetra hraða á Reykjanesbraut

Einn nokkurra ökumanna, sem kærðir voru fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina ók á 162 kílómetra hraða eftir Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund.  Ökumaðurinn, sem er vel innan við tvítugt þarf að greiða 150 þúsund krónur í sekt. Að auki var hann með bráðabirgðaskírteini  sem hann var sviptur og ökuskírteinið fær hann ekki aftur fyrr en hann hefur sótt sérstakt námskeið og tekið ökuprófið að nýju.

Þá hafði lögregla afskipti af fáeinum til viðbótar sem ýmist óku undir áhrifum áfengis, fíkniefna eða sviptir ökuréttindum.