Nýjast á Local Suðurnes

Óhagnaðardrifið leigufélag sækir um lóðir í Reykjanesbæ

Þann 13. Desember síðastliðinn hélt Íbúðafélag Suðurnesja opinn stjórnarfund þar sem framkvæmdaráætlun félagsins var kynnt fyrir fundargestum. Tilgangur félagsins er að bjóða félagsmönnum leigu á ódýrari íbúðum en gengur og gerist á almennum markaði.

Á fundinum samþykkti stjórn félagsins áætlunina og undirritaði. Með henni hefst formlegt umsóknarferli félagsins um byggingalóðir fyrir leiguhúsnæði sem félagið hyggst reisa í Reykjanesbæ. Það var Díana Hilmarsdóttir sem tók formlega við umsókninni og framkvæmdaráætlun í Ráðhúsi Reykjanesbæjar fyrir hönd Jóhanns Friðriks Jóhannssonar forseta bæjarstjórnar, en hann er staddur erlendis.

Í tilkynningu frá Íbúðafélag Suðurnesja segir að það sé einlæg von félagsins að vel verði tekið í umsókn þessa og vonumst félagið eftir góðu samstarfi við Reykjanesbæ í framtíðinni.

Stjórn íbúafélags Suðurnesja Hsf. skipa þau Ragnhildur Guðmundsdóttir, Eiríkur Barkarson, Margrét Þórólfsdóttir, Einar M. Atlason, Eyrún Rögnvaldsdóttir og Þórólfur J. Dagsson.