sudurnes.net
Ógnandi farþegi til vandræða í flugvél og leigubifreið - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum var í fyrradag kvödd á Keflavíkurflugvöll vegna farþega sem var að koma frá Boston og hafði látið ófriðlega í flugvélinni. Hann var mjög ölvaður og hafði verið með ógnandi tilburði við flugáhöfn og farþega allt flugið. Hann var ósamvinnuþýður við lögreglu og var því handtekinn og færður á lögreglustöð til yfirheyrslu. Að henni lokinni var honum ekið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þar sem hann ætlaði að halda ferð sinni áfram. Í gær lenti svo leigubifreiðastjóri í vandræðum með farþega sem hann hafði ekið um Reykjanesbæ ýmissa erinda en sá vildi ekki greiða fargjaldið við lok ferðar. Lögreglan var kvödd til og reyndist farþeginn vera sá sami og hafði látið ófriðlega í flugvélinni í fyrradag. Sátt náðist um að hann myndi greiða upp í gjaldið þá peninga sem hann hafði handbæra og segir ekki frekar af ferðasögu hans. Meira frá SuðurnesjumMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkRíkið samdi við Icelandair en flestum ferðum er aflýstRennibrautir í Vatnaveröld teknar í notkun í haustTekinn með tvö kíló af kókaíni í LeifsstöðLítil mengun á Flugvöllum – Svæðið klárt til byggingarframkvæmdaFjórir fóru út af á Reykjanesbraut – Einn fluttur á slysadeildReyndi að villa um fyrir lögregluStarfslokasamningur við bæjarstjóra samþykktur – Heildarkostnaður um [...]