sudurnes.net
Oft­ast strikað yfir nafn Ásmundar - Local Sudurnes
Oft­ast var strikað yfir nafn Ásmund­ar Friðriks­son­ar sem skipaði annað sæti á lista Sjálf­stæðis­flokks­ins í Suðurkjördæmi í kosningunum sem fram fóru á laugardag. Ásmundur hlaut einnig þennan vafasama heiður síðast þegar kosið var til Alþingis, en þá var strikað yfir nafn hans 168 sinn­um, sem nam um tveim­ur pró­sent­um af at­kvæðatölu list­ans. Tæp­lega átta pró­sent kjós­enda Sjálf­stæðis­flokks­ins í Suður­kjör­dæmi strikuðu yfir nafn eða nöfn á lista flokks­ins, en eng­ar til­færsl­ur verða þó á upp­röðun fram­bjóðend­anna á list­un­um þar sem útstrik­an­ir hafi ekki verið nógu marg­ar til að fella fram­bjóðend­ur niður um sæti. Lands­kjör­stjórn fundaði í dag til að fara yfir hvernig kosn­ing­arn­ar gengu fyr­ir sig. Krist­ín­ Edwald, for­maður stjórn­ar­inn­ar segir í samtali við mbl.is að staðfestar niður­stöður henn­ar varðandi út­strik­an­ir verði birt­ar eft­ir viku. Meira frá SuðurnesjumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkFöstudagspistillinn: Pólitík og gleði eða kannski bara pólitísk gleðiErlendur þarf að tilkynna sig á lögreglustöð næstu átta vikurnarReyndi að villa um fyrir lögregluSvavar Knútur með tónleika í SalthúsinuLeiðsögn um sýninguna HULDUFLEY, skipa- og bátamyndir KjarvalsUm 600.000 erlendir ferðamenn heimsóttu Reykjanesbæ – Skortir afþreyingu og þjónustuÁtt við reiðhjól barna í Reykjanesbæ – “Get bara ekki skilið það hvað það er mikið til [...]