Nýjast á Local Suðurnes

Ofsaveður eða fárviðri – Þetta þarftu að hafa í huga!

Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur segir, í viðtali við Síðdegisútvarp RÚV, að þeir sem mögulega geti eigi að vera heima hjá sér á morgun þar sem veður líkt og það sem er spáð í nótt og á morgun geti verið mjög hættulegt.  Á Suðurnesjum er spáð vindhraða upp á allt að 32 metra á sekúndu.

Á vef Almannavarna eru ráðleggingar varðandi ofasveður:

Ef Veðurstofa Íslands varar við veðri, skal taka það alvarlega. Sérstaklega ef varað er við miklum stormi/vindi, úrhelli, snjókomu, frostregni og/eða ofsakulda. Afleiðingar geta verið margs konar; manntjón, tjón á eignum og innviðum, búfénaði, uppskeru og umhverfinu.

Hlustið á tilkynningar og/eða viðvaranir sem kunna að vera gefnar í sjónvarpi eða útvarpi. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vinnur í nánu samstarfi við Veðurstofu Íslands vegna veðurvár og virkjar viðbragð ef þurfa þykir.

Nauðsynlegt viðhald
Haldið húsakosti vel við. Gangið úr skugga um að þakplötur séu tryggilega festar, einnig þakrennur, grindverk og þess háttar.

Þegar spáð er ofsaveðri eða fárviðri:

Lausir munir
Heftið fok lausra muna utandyra. Trampólín, sólstólar og grill fara gjarnan af stað í ofsaroki

Lokið gluggum og hurðum
Fullvissið ykkur um að öllum gluggum og hurðum sé tryggilega lokað.

Skólar, ferðalög og mannamót
Fylgist með veðri og tilkynningum. Aflýsið ferðalögum og mannamótum og sendið ekki börn í skóla nema í samráði við skóla. Metið hvort ferðir út á land séu nauðsynlegar og hvort fresta eigi för vegan slæmrar veðurspár.

Byrgið glugga
Byrgið glugga eða setjið öryggisfilmu á gler til að koma í veg fyrir skæðadrífu glerbrota ef rúða brotnar (notið ekki teip). Látið rúm ekki standa undir gluggum ef hætta er á ofsaveðri.

Neyðarkassi
Gott er að hafa neyðarkassa með nauðsynjum til taks ef búast má við ofsaveðri og ófærð.