sudurnes.net
Nýttu farartæki IGS við að koma þýfi út fyrir öryggissvæði - Local Sudurnes
Þrír karlmenn, sem handteknir voru vegna stórfellds þjófnaðar á tollfrjálsum varningi frá flugþjónustufyrirtækinu IGS á Keflavíkurflugvelli fyrr í mánuðinum nýttu í einhverjum tilfellum farartæki fyrirtækisins við að koma þýfinu út fyrir öryggissvæði flugvallarins. Í frétt á Vísi.is kemur fram að upp hafi komist um athæfið við rýrnunareftirlit innan fyrirtækisins um miðjan júlí og var lögregla kölluð til. Rannsókn hennar leiddi í ljós að starfsmennirnir höfðu lengi stundað þjófnað, einkum á nautalundum og lambakjöti, úr frystiklefa flugþjónustufyrirtækisins. Í frétt Vísis kemur einnig fram að umrætt svæði sé undir eftirliti Tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli. Í tilkynningu lögreglu vegna málsins kefur fram að tveir mannanna hafi starfað hjá flugþjónustu á Keflavíkurflugvelli og hafði annar þeirra starfað hjá fyrirtækinu í um ár en hinn töluvert lengur. Vegna starfa sinna höfðu þeir aðgang að inn á flugverndarsvæði flugvallarins. Þriðji maðurinn sem handtekinn var mun svo hafa séð um að koma þýfinu í verð. Meira frá SuðurnesjumVilja reka tjaldsvæði að evrópskri fyrirmynd – Hægt verði að bóka gistingu fyrirframErtu að pakka saman jólaseríunum? – Einfalt ráð til að sleppa við flækjur!Þrír handteknir vegna líkamsárásar í heimahúsi í ReykjanesbæGrindvíkingar í úrslit GeysisbikarsinsÞrír nýir veitingastaðir opna á KEFÞrír af hverjum tíu farþegum sem fara um FLE koma ekki inn í landiðErlent vinnuafl [...]