sudurnes.net
Nýta yfirdrátt til útgjaldajöfnunar ef þörf krefur - Local Sudurnes
Ýmis jákvæð teikn á lofti í rekstri Sveitarfélagsins Voga samhliða fólksfjölgun. Rekstrarniðurstaða var þó neikvæð um 64 m.kr á fyrst sex mánuðum ársins, en tekjur voru 7% hærri en áætlað var sem er í takt við aukna fólksfjölgun en íbúum hefur fjölgað um 10% það sem af er ári. Verðbólga og kostnaðarhækkanir hafa haft töluverð áhrif á afkomu á fyrstu sex mánuði ársins hjá Sveitarfélahinu Vogum, samkvæmt fundargerð bæjarstjórnar, en rekstrargjöld reyndust 9% hærri og fjármagnsliðir 10% neikvæðari en gert var ráð fyrir í áætlunum. Bæjarstjórn heimilaði bæjarstjóra að ganga frá samningi við Íslandsbanka um yfirdráttarheimild á veltureikning sveitarfélagsins að fjárhæð allt að 30 m.kr. Er heimildin veitt til eins árs og verður nýtt til útgjaldajöfnunar innan ársins, ef þörf krefur. Meira frá SuðurnesjumSlasaðir sóttir við gosstöðvarnar – Loka svæðinu ef þörf krefurReykjaneshöfn hefur sótt um enn einn frestinnBláa lónið fær langmest út úr ferðatékkanumSex skjálftar yfir þremur að stærð í nóttSamfélagssjóður Isavia styrkir fjölda góðgerðarmálaJákvæð teikn á lofti í Vogum – Mikil fjölgun íbúa kallar á innviðauppbygginguHafa ekki fundið lausnir á umferðaröryggismálum við dansskóla á sex mánuðumRíkið styrkir hjólastígagerð í Vogum og SuðurnesjabæÓhagnaðardrifið leigufélag vill byggja 108 íbúðir í Innri-NjarðvíkLoka fyrir aðgang að gosstað í kvöld af öryggisástæðum