Nýr stjóri Kadeco hnýtir lausa enda
Ráðið hefur verið í stöðu framkvæmdastjóra Kadeco, en starfið var auglýst laust til umsóknar í september síðastliðnum. Þetta kemur fram á vef Kjarnans.
Samkvæmt frétt Kjarnans er sá aðili að hnýta lausa enda við núverandi vinnuveitanda og því ekki tímabært að greina frá nafni viðkomandi. Tilkynningar er að vænt fyrir lok þessarar viku.
Fyrrverandi framkvæmdastjóri félagsins, Marta Jónsdóttir, lét af störfum fljótlega eftir að starfið var auglýst laust til umsóknar í lok september á síðasta ári en hún hafði verið framkvæmdastjóri fyrirtækisins síðan í ágúst 2017.