sudurnes.net
Nýr safnleikskóli opnar fyrir grindvísk börn - Local Sudurnes
Stefnt að því að bjóða upp á allt að 6 klukkustunda vistun fyrir börn úr Grindavík í safnleikskóla í Grafarvogi. Starfið hefst á samverustund barna, foreldra og starfsfólks í dag. Fyrstu tveir dagarnir verða nýttir til þess að kanna hversu mörg börn nýta sér leikskólann og kortleggja starfsaðstæður barna og starfsfólks, segir í tilkynningu á vef Grindavíkurbæjar. Markmið bæjaryfirvalda er að tryggja börnum leikskólavist með rútínu og farsæld barna í huga. Vænta má frekari upplýsinga á föstudag um starfsemi safnleikskólans og möguleika á leikskólavistun. Nýr safnleikskóli opnar í leikskólanum Bakkakoti í Grafarvogi fimmtudaginn 30. nóvember. Fjöldi barna hefur þegar fengið vistun á leikskólum í bæjarfélögum þar sem þau eru búsett á meðan önnur bíða eftir plássi. Safnleikskólinn stendur grindvískum börnum sem voru á leikskólunum Laut og Króki til boða, segir í tilkynningunni. Meira frá SuðurnesjumBjóða sex milljónir króna í fundarlaunBoða til íbúafundar vegna breytinga á leiðakerfi strætóLoka Hlévangi og byggja á NesvöllumLækka útsvar í Reykjanesbæ – “Staðið við öll fyrirheit, en þurftum að horfast í augu við árið 2014”Friðarganga í Grindavík á föstudag30 milljónir í verkefni sem íbúar kusu umVilja bjóða út rekstur heilsugæslu – Ættu að vera þrjár stöðvar á SuðurnesjumDýpka höfnina í SandgerðiFlugumferðarstjórar enn veikir – Ekkert flogið frá Keflavíkurflugvelli í [...]