Nýr Páll Jónsson GK á heimleið
Nýr Páll Jónsson GK hefur lagt af stað frá Gdansk í Póllandi og er ferðinni heitið til heimahafnar í Grindavík.
Áætlaður siglingartími veltur á veðurskilyrðum en búist er við að það taki skipið um 5-7 daga. Væntanlegur komutími til Grindavíkur er þá á milli næstkomandi sunnudags og þriðjudags en upplýst verður um nánari dagsetningu þegar nær dregur, segir í tilkynningu frá Vísi hf., sem á skipið.
Þetta er stór stund í sögu fyrirtækisins og mikil eftirvænting ríkir eftir komu þess.
Hægt er að fylgjast með siglingunni með því að nota tengilinn hér að neðan.
https://www.marinetraffic.com/en/ais/details/ships/shipid:5981536/mmsi:251372000/imo:9847827/vessel:PALL_JONSSON/_:2cc9765e2a2d87f2827084e9d8fd9f1a