sudurnes.net
Nýr bæjarstjóri flytur til Grindavíkur - "Viljum taka þátt í mannlífinu" - Local Sudurnes
Fann­ar Jónasson, nýr bæjarstjóri Grindavíkur er bú­sett­ur í Reykja­vík ásamt eig­in­konu sinni Hrafn­hildi Kristjáns­dótt­ur og yngstu dótt­ur þeirra hjóna. Flutn­ing­ar til Grinda­vík­ur eru þó í kort­un­um og er fjöl­skyld­an þegar kom­in með hús­næði í bæn­um. Þetta kemur fram á vef mbl.is „Þó það hafi ekki verið áskilið í aug­lýs­ing­unni, þá fannst mér blasa við að það væri nauðsyn­legt fyr­ir bæj­ar­stjóra að vera á staðnum þó ekki sé nema eitt og hálft ár eft­ir af þessu kjör­tíma­bili,“ seg­ir Fann­ar. „Þetta snýst ekki bara um að sitja á bæj­ar­stjórn­ar­skrif­stof­unni. Við fjöl­skyld­an vilj­um líka taka þátt í mann­líf­inu á þessu svæði og hlökk­um mjög til þess, þannig að það kom eig­in­lega ekki annað til greina af okk­ar hálfu ef ég fengi ráðning­una.“ Meira frá SuðurnesjumLeikskólastarf og bæjarhátíð í hættu verði skipuð fjárhaldsstjórnSvikahrappar falast eftir lykilorðum – Sjáðu hvernig er best að svara!Friðjón: “Engar útleiðir fyrir sveitarfélög út úr svona verkefnum”Röskun hjá HSS – Starfsfólk kemst ekki til vinnuLax án fyrirhafnar – Klár á korteri!Skiltin innan veghelgunarsvæðis Vegagerðarinnar – “Staðsetningin mjög slæm”Mikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkAðeins tæp 9% kusu í rafrænum íbúakosningumEldspúandi á baðfötum í saltgeymslu í leyfisleysiSetja vinnureglur sem lýsa verklagi vegna undirmönnunar í leikskólum