Nýjast á Local Suðurnes

Nýliðunarvandi í kennarastétt er farinn að segja til sín á Suðurnesjum

Helgi Arnarson, sviðsstjóri fræðslusviðs, fór yfir tölulegar upplýsingar um fjölda kennara og leiðbeinenda í grunnskólum Reykjanesbæjar, á síðasta fundi fræðsluráðs Reykjanesbæjar.

Í máli Helga kom fram að fyrirséður nýliðunarvandi í kennarastétt sé farinn að segja til sín á Suðuenesjasvæðinu og að mikilvægt sé að leitað verði allra leiða til þess að sporna gegn honum sem og að koma í veg fyrir brotthvarf kennara úr starfi. Hlutfall kennara með kennsluréttindi er nú tæp 80%.

Þá benti Helgi á að fjöldi leiðbeinenda stundaði nú nám til kennsluréttinda með hvatningu og styrk frá sveitarfélaginu.

Þá er að mati Helga mikilvægt er að hlúa vel að námi barna af erlendum uppruna í skólunum á svæðinu og nauðsynlegt að gera þeim málaflokki hátt undir höfði. Sviðsstjóri benti á að í nýútkominni handbók sem kynnt var sl. vor séu ýmsar tillögur til úrbóta sem verið sé að vinna að.