sudurnes.net
Ný heilsugæsla verði í nýju hverfi - Local Sudurnes
Framkvæmdasýsla ríkisins og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hafa lagt fram frumathugunarskýrslu vegna lóðar fyrir nýja heilsugæslustöð í Innri-Njarðvík. Niðurstaða forathugunar er lóð í nýju hverfi, Salahverfi III uppfylli skilyrðin sem sett eru fram í athugunni betur en aðrar lóðir sem skoðaðar voru. Umhverfis- og skipulagsráð ræddi skýrsluna á síðasta fundi sínum og er sammála staðarvali fyrir nýja heilsugæslustöð sem mun þjóna íbúum Innri-Njarðvíkur vel. Ráðið bendir jafnframt á að íbúum Suðurnesja fer ört fjölgandi og miðað við mannfjöldaspár er brýnt að undirbúningur þriðju heilsugæslustöðvar í sveitarfélaginu hefjist strax. Meira frá SuðurnesjumHeimilt að auglýsa breytt deiliskipulag fyrir FitjarSjóherinn pirrar NjarðvíkingaLúxusinn í fyrirrúmi um borð í A – Myndband!Bjóða íbúum sand til hálkuvarnaLeggja til að þróunarsvæði á Ásbrú verði boðið útMynd komin á 339 íbúða hverfi – Myndir!Fordæmalaus hækkun húsnæðisverðs á SuðurnesjumOpinn íbúafundur um skipulagstillögurRúmlega 300 íbúðir í nýju DalshverfiFara í sértækar aðgerðir til að stuðla að þátttöku aðfluttra íbúa í menningarstarfi