Nýjast á Local Suðurnes

Notuðust við varaflugvöll í eitt skipti á síðasta ári

Flugvélar sem neyðast vegna ófyrirséða atburða að breyta um lendingarstað eftir að aðflugs-undirbúningur er hafinn mynda brot af öllum þeim lendingum sem verða á Keflavíkurflugvelli.

Á síðasta ári neyddist ein flugvél, sem ætlaði að lenda á Keflavíkurflugvelli, til að lenda annars staðar vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna, eftir að undirbúningur aðflugs var hafinn. Flugvélin lenti á Akureyri. Frá þessu er greint á Kjarninn.is og er á meðal þess sem lesa má úr svari innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Helga Hrafni Gunnarssyni um lendingar flugvéla á Keflavíkurflugvelli og varaflugvöllum.

Þá tekur Kjarninn sem dæmi að hreyfingar á árinu 2014 hafi verið um 71 þúsund talsins. Ef gert er ráð fyrir að helmingur hafi verið lendingar, eða um 35.500 lendingar, þá þurfti að lenda annars staðar í 0,0029 prósent tilvika. Árið 2008, þegar flestar flugvélar eða alls tíu talsins breyttu um flugvöll eftir að undirbúningur að lendingu var hafinn, var sama hlutfall um 0,047 prósent. Það eru tíu skipti af alls um 21.500 lendingum í Keflavík það ár.

Tölur voru fengnar frá Icelandair og ná til áranna 2005 til 2015. Upplýsingarnar miða allar við flug þar sem undirbúningur aðflugs var hafinn en flugvélin þurfti frá að hverfa, oftast vegna veðurs.