sudurnes.net
Nota hátæknibúnað við rannsóknir á loftslagsbreytingum við Garðskaga - Local Sudurnes
Öflugir vindar, mikil ölduhæð og sterkir hafstraumar eru helstu ástæður þess að bandaríska haffræðistofnunin Scripps valdi hafssvæðið í kringum Ísland til rannsóknarverkefna með háþróuðum tæknibúnaði sínum. Vonast er til að niðurstöðurnar nýtist meðal annars við rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga. Scripps-stofnunin, sem er hluti af Kaliforníuháskóla í San Diego, hefur gert sérstakan samstarfssamning við Landhelgisgæslu Íslands, Hafrannsóknastofnun og Háskóla Íslands vegna þessa verkefnis. Drög voru lögð að samstarfinu síðastliðið haust. Fulltrúar Scripps-stofnunarinnar voru hér á landi í síðustu viku og fóru þá með Baldri, sjómælingabát Landhelgisgæslunnar, út fyrir Garðskaga. Þar voru sjósett öldurekdufl og tveir háþróaðir rannsóknanökkvar (e. wave gliders) sem næstu misseri mæla ölduhæð, hafstrauma, loftþrýsting og hitastig á hafsvæðinu. Hægt verður að lesa af mælitækjunum, sem eru sólarknúin, í rauntíma því þau senda stöðugt frá sér upplýsingar. Einnig hafa nokkur öldureksdufl verið sjósett frá áramótum af varðskipunum en fyrirhugað er að slíkum duflum verði komið í sjó á næstunni af varðskipum, skipum Hafrannsóknarstofnunar, jafnvel millilandaskipum og flugvél og þyrlum Landhelgisgæslunnar. Þau eru lítil og létt og á sjófarendum ekki að stafa hætta af þeim. Dr. Eric Terrill, vísindamaður við Scripps-stofnunina segir að mæling á stórum öldum sem myndast í óveðri geti reynst vandasöm vegna þess hve erfitt er að [...]