Norwegian bætir í: Sjö ferðir á viku til Kanarí - Local Sudurnes
Flugfélagið Norwegian ætlar að hefja áætlunarflug milli Íslands og Las Palmas og Tenerife í haust. Í tilkynningu frá flugfélaginu kemur fram að 30. október mun Norwegian fljúga tvisvar í viku, á miðvikudögum og laugardögum, til Las Palmas á Kanaríeyjum. Frá 27. október mun Norwegian fljúga fimm sinnum í viku milli Keflavíkurflugvallar og Tenerife. Flogið verður á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum. Til stendur að fljúga á báðum þessum flugleiðum út árið. Norwegian hóf áætlunarflug milli Íslands og Spánar á árinu 2016. Haft er eftir aðstoðarforstjóra Norwegian, Magnus Thome Maursund, að með því að bæta við þessum tveimur flugleiðum milli Íslands og Spánar sé flugfélagið með leiðandi stöðu á flugferðum milli Íslands og Spánar. Meira frá SuðurnesjumKenna bæjarbúum á útiæfingatækinBlái herinn og UMFG hreinsa svæðið við Brimketil – Sjálfboðaliðar velkomnir í hópinn!Hæfingarstöðin safnar fyrir tækjum – Myndband!Pólskt góðgerðarfélag hóf hreinsunarátak í HelguvíkKeilir 10 ára – Útskrifaðist frá Keili og starfar nú hjá PorscheBókasafn Reykjanesbæjar fékk HvatningarverðlaunVerðlaun veitt fyrir best skreytta húsið og götunaÆrslabelgur á ÁsbrúFFGÍR býður foreldrum grunnskólabarna á fyrirlestur með Þorgrími ÞráinssyniLeita eftir áhugasömum aðilum til að ganga og mynda gönguleiðir á Reykjanesi