sudurnes.net
Nokkuð um vímuefnaakstur og árekstra á Suðurnesjum í vikunni - Local Sudurnes
Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af í vikunni vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna var með fíkniefni í fórum sínum. Sama máli gegndi um farþega sem var í bílnum með honum. Annar ökumaður var einnig handtekinn vegna gruns um vímuefnaakstur og færður á lögreglustöð. Þá var tilkynnt um nokkur umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Bifreið sem ekið var eftir Skógarbraut valt eftir að ökumaðurinn missti stjórn á henni. Hafnaði hún á hvolfi utan vegar. Mældist vegalengdin frá því að hún fór út af og þar til að hún staðnæmdist 40 metrar. Ökumaðurinn fór á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Þá var bifreið ekið aftan á aðra sem var kyrrstæð og mannlaus í vegkanti á Aðalgötu. Í öðrum tilvikum var um minni háttar mál að ræða. Meira frá SuðurnesjumNokkur fíkniefnamál á borð lögregluMikil skjálftavirkni á ReykjanesiUmdeildasta mark íslenskrar knattspyrnusögu rifjað upp – Myndband!Hafa haldlagt mikið magn fíkniefna í Flugstöð Leifs EiríkssonarÁ fimmta tug ungmenna hlýddu á fyrirlestur um skaðsemi vímuefnaHandtekinn með amfetamín í sokknum og lyf á víð og dreif um heimiliðBiðla til ökumanna að skoða myndavélarBílaleiga Akureyrar kaupir stórar lóðir á Ásbrú – “Núverandi aðstaða sprungin”Starfsmenn erlendra ferðaskrifstofa kynntu sér möguleikana á ReykjanesiLeiðinlegir íbúar Innri [...]