sudurnes.net
Njarðvíkingar ósáttir við lengd leikbanns - Local Sudurnes
Eins og fram hefur komið var Zvonko Buljan leikmaður Njarðvíkur í gær dæmdur í þriggja leikja bann af aga- og úrskurðarnefnd KKÍ. Niðurstaða nefndarinnar er stjórn KKD UMFN mikil vonbrigði. Stjórn KKD UMFN mótmælti ekki kærunni til aga- og úrskurðarnefndar þegar hún var upphaflega send til félagsins enda áttu gjörðir Buljan sem hann er dæmdur fyrir ekkert erindi við körfuknattleik, segir í tilkynningu sem birt er á vef UMFN. Njarðvík harmar þessa hegðun leikmannsins og verður tekið á málinu innanbúðar með viðeigandi hætti. Það er einróma mat stjórnar KKD UMFN að í þessu máli hafi aga- og úrskurðarnefnd farið umtalsvert úr hófi fram við dómskvaðningu sína. Að vísa til reglugerðar um líkamsmeiðingar eða tilrauna til slíks, þegar myndbandsupptakan sýnir glögglega að þarna var á ferðinni óviðeigandi hegðun og tilraun til ögrunar án líkamsmeiðinga, er óhóf af hálfu aga- og úrskurðarnefndar. Síðustu sex ár hafa sex leikmenn á Íslandi verið dæmdir í þriggja leikja bann eða meira. Ástæður hafa verið m.a. „hættuleg framkoma gagnvart dómurum leiksins.“ – „Sérlega grófur leikur eða ofbeldi.“ – „Alvarlega grófur leikur.“ Myndbandið sem farið var vel yfir í Körfuboltakvöldi sýnir að sú var ekki raunin í viðureign KR og Njarðvíkur þann 3. október og því vill [...]