sudurnes.net
Njarðvíkingar og Grindvíkingar styrkja sig - Local Sudurnes
Jón Axel Guðmunds­son, landsliðsmaður í körfuknatt­leik, er kom­inn með fé­laga­skipti til Grinda­vík­ur en hann lék með Crails­heim Merl­ins í Þýskalandi seinni hluta síðasta tíma­bils. Þá hefur Njarðvík samið við bakvörðinn Nicholas Richotti um að leika með liðinu í Subwaydeild karla. Richotti lék með Njarðvík á síðustu leiktíð þegar liðið vann VÍS-bikarkeppnina og deildarmeistaratitilinn. Richotti er væntanlegur til landsins á næstu dögum en hann hefur verið við æfingar á Tenerife síðan í sumar, segir í tilkynningu frá Njarðvíkingum. Nico eins og hann er jafnan kallaður var með 14,4 stig, 4,4 fráköst og 5,2 stoðsendingar að meðaltali í leik. Jón Axel gæti hinsvegar mögulega spilað með Grind­vík­ing­um þegar þeir sækja Kefl­vík­inga heim í þriðju um­ferð úr­vals­deild­ar­inn­ar á fimmtu­dags­kvöld. Meira frá SuðurnesjumGrindvíkingar semja við skotbakvörðGrindvíkingar leika án útlendings og lykilmanna gegn FSuHörður Axel til BelgíuBætist í hópinn hjá NjarðvíkSverrir Þór hættir og fjórir öflugir framlengja hjá KeflavíkÞrír Suðurnesjamenn í landsliðshóp karla í körfuknattleikHörður Axel klárar tímabilið með Keflavík – “Svo lengi sem þjálf­ar­inn vel­ur mig í liðið”Keflavík endaði veruna í Pepsí-deildinni á sigriHörður Axel semur við Keflavík til fjögurra áraMartin til Njarðvíkur