sudurnes.net
Njarðvíkingar fá leikmann úr belgísku úrvalsdeildinni - Local Sudurnes
Knattspyrnudeild Njarðvíkur hefur náð samkomulagi við belgíska úrvalsdeildarklúbbinn K.V. Kortrijk um að fá Luqman Hakim lánaðan út Lengjudeildina 2023. Luqman er frá Malasíu, og er sóknarsinnaður leikmaður sem á alls 2 A landsleiki fyrir Malasíu, sem og ótal marga yngri landsleiki, segir í tilkynningu frá Njarðvík. Luqman sem er tvítugur að aldri var á lista The Guardian yfir 60 efnilegustu leikmenn heims árið 2019. Luqman var keyptur til K.V. Kortrijk frá heimalandi sínu árið 2020 og hefur síðan komið við sögu í 2 leikjum fyrir félagið í belgísku úrvalsdeildinni. Þar á meðal í einum leik á þessari leiktíð.Þar fyrir utan hefur hann spilað fyrir u21 árs og varalið félagsins. Luqman er nú þegar kominn til landsins. Meira frá SuðurnesjumAlexander Veigar og Matthías Örn áfram hjá GrindavíkTveir öflugir í Njarðvík – McAusland verður spilandi aðstoðarþjálfariNjarðvíkingar deildarmeistararSamúel Kári meiddist á æfingu – Verður líklega frá keppni út áriðRichard Brian varð Íslandsmeistari og Sigríður setti ÍslandsmetSara náði ekki að tryggja sig á heimsleikanaGuðjón Árni áfram með VíðiGeimfarar næla í flotta söngkonuGuðjón Árni tekur við VíðiTveir Suðurnesjamenn á lokaborði Íslandsmótsins í póker