sudurnes.net
Njarðvíkingar deildarmeistarar - Local Sudurnes
Njarðvíkingar tóku á móti deildarmeistaratitli 2. Deildarinnar í knattspyrnu eftir 3-0 sigur á heimavelli gegn Hetti/Huginn. Fyrir leikinn hafði liðið tryggt sér upp í Lengjudeildina að ári en þurfti sigur úr leik dagsins til að tryggja að bikarinn færi á loft fyrir framan stuðningsmenn á Rafholtsvellinum. Það hafðist nokkuð sannfærandi með 3-0 sigri þar sem Magnús Þórir Matthíasson skoraði þrennu fyrir Njarðvíkinga. Njarðvíkingar eru með 52 stig fyrir lokaumferð mótsins, liðið hefur skorað 60 mörk í sumar og aðeins fengið á sig 21. Meira frá SuðurnesjumÖruggur sigur kom Grindavík á topp Inkasso-deildarinnarNjarðvík á toppinn eftir sigur í grannaslagVíðir með fullt hús stiga eftir sigur á Einherja – Hafa aðeins fengið á sig eitt markNjarðvíkingar nálgast Inkasso – Hogg með tvö mörk í öruggum sigri á VestraNjarðvík hélt toppsætinu – Víðir í sjöunda eftir tap á GrenivíkÖruggt hjá Keflavík gegn Leikni F.Arnór Ingvi átti stóran þátt í meistaratitli NorrköpingFlottur endurkomusigur Þróttar – Unnu C-deild Fótbolta.net mótsinsReynsluboltinn Kenny framlengir við NjarðvíkVíðir tryggði sér sæti í 2. deild með sigri á Þrótti