Níu stöðvaðir á negldum dekkjum
Níu ökumenn hafa verið stöðvaðir að undanförnu fyrir að aka um á bifreiðum á negldum dekkjum, en sektin við því er 20.000 krónur á dekk. Tveir þeirra gerðu illt verra og voru á ferðinni án ökuréttinda. Þrír óku síðan með filmur í fremri hliðarrúðum bifreiða sinna og þurfa þeir að færa þær til skoðunar.
Þá voru höfð afskipti af ökumanni sem var með tvö börn í aftursæti bifreiðar sinnar, annað í barnabílstól en hvorugt þeirra í belti.
Tveir ökumenn óku svo á ljósastaura í umdæminu og var annar þeirra grunaður um ölvunarakstur.