Nýjast á Local Suðurnes

Níu kærðir fyrir hraðakstur og einn fyrir ölvunarakstur

Rúmlega þrítugur ökumaður sem mældist um helgina á 121 km. hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund reyndist einungis hafa réttindi til að aka bifhjóli þegar lögreglan á Suðurnesjum bað hann um ökuskírteini.

Átta ökumenn til viðbótar voru kærðir fyrir hraðakstur, þar af einn sem ók á 137 km. hraða eftir Reykjanesbrautinni þar sem 90 km. hámarkshraði gildir.

Þá voru höfð afskipti af einum ökumanni vegna gruns um að hann væri ölvaður undir stýri.