sudurnes.net
Nilfisk "haglabyssa" hélt árásarmanni frá starfsfólki skartgripaverslunar - Local Sudurnes
Vefmiðillinn Vísir hafði eftir heimildum sínum í gærkvöldi að eigandi úra- og skartgripaverslunar, hvar tilraun var gerð til ráns í gær, hafi haft haglabyssu til taks í versluninni og að það hefði komið sér vel í við þær aðstæður sem upp komu. Maðurinn braut og bramlaði í versluninni, en hann var vopnaður öxi. Heimildirnar voru þó ekki alveg réttar, en eigandi verslunarinnar útskýrir í samtali við sama miðil að hann hafi gripið til ryksugurörs, sem sé líklega rúmur metri að lengd, til að halda manninum frá, en ekki haglabyssu. „Það var það skásta til að halda honum frá sér. Það er orðið að Nilfisk-haglabyssu,“ segir eigandinn. Sveinbjörn Halldórsson, lögreglufulltrúi á Suðurnesjum, segir í samtali við Vísi að maðurinn sé enn í haldi lögreglu. Of snemmt sé að segja til um hvort farið verði fram á gæsluvarðhald. Maðurinn sé í „viðeigandi meðferð“. Meira frá SuðurnesjumEinn stofnenda Tjarnarverks ætlaði að græða á fasteignabraskiVinsælast 2015: Leigusali ætlaði að græða á fasteignabraskiHefja starfsemi fardeilisíðu á ReykjanesiKeflavík hvetur iðkendur til að tilkynna um mögulega hagræðingu úrslitaEngin hætta á að viðskiptavinir hefðu fengið “traðkaðar” Dominos pizzurTæplega 9 milljónir farþega fara um Keflavíkurflugvöll árið 2017Sviptir ökuleyfi eftir hraðakstur við skóla – Lögregla með átak við alla grunnskólaSlæmar aðstæður [...]