sudurnes.net
Neytendastofa sektar Hótel Keflavík vegna umsagna á ferðavefsíðu - Local Sudurnes
Neytendastofa hefur sektað Hótel Keflavík um 250 þúsund fyrir neikvæðar umsagnir sem starfsmaður hótelsins skrifaði á vefsíðuna Expedia.com, síðastliðið sumar, um keppinautinn Flughótel Keflavík. Neytendastofu barst erindi frá Flughótel Keflavík þar sem kvartað var vegna neikvæðra umsagna sem skrifuð voru um hótelið á bókunarvefsíðu. Taldi Flughótel Keflavík að starfsmaður annars hótels, Hótel Keflavík, hefði ritað ummælin í tengslum við bókanir fyrir ferðamenn. Í ákvörðun Neytendastofu kom fram að umsagnirnar stöfuðu frá netfangi á vegum Hótel Keflavík. Umsagnir á bókunarvefnum væru einungis ætlaðar viðskiptavinum fyrirtækja en ekki keppinautum og væri ætlað að endurspegla reynslu viðskiptavina af þjónustunni. Neytendastofa taldi að um væri að ræða óréttmæta og villandi viðskiptahætti sem væru til þess fallnir að hafa áhrif á eftirspurn þjónustu keppinautar. Neytendastofa taldi nauðsynlegt að banna háttsemina og var 250.000 kr. stjórnvaldssekt lögð á fyrirtækið. Ákvörðunina má nálgast hér. Meira frá SuðurnesjumVilja fresta 600 milljóna framkvæmdumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnReykjanesbær undirbýr endurfjármögnun 8,4 milljarða skuldarFær 250.000 króna sekt fyrir hraðaksturHefja fjársöfnun til að standa straum af kostnaði við málsókn gegn United SiliconSuðurnesjakonur í stjórnmálum skrifa undir #Metoo áskorunÚthluta 47 milljónum króna – Janusarverkefnið fær hæsta styrkinnStaða skólastjóra laus til umsóknar250 hermenn og fjórtán [...]