sudurnes.net
Neyðarstjórn Reykjanesbæjar: Sóttvarnir varða hag samfélagsins alls - Local Sudurnes
Neyðarstjórn Reykjanesbæjar hvetur öll fyrirtæki og almenning til að fylgja Samfélagssáttmálanum áfram til þess að tryggja góðan árangur í sóttvörnum. Allar aðgerðir í sóttvarnarástandi hafa áhrif á daglegt líf fólks, mismikið þó en eru gerðar í þeim tilgangi að vernda einstaklingana í samfélaginu. Sóttvarnir varða heilsu einstaklingsins en um leið hag samfélagsins alls. Við erum öll almannavarnir. Þrátt fyrir fjöldatakmarkanir, sóttvarnarráð og aðrar takmarkanir í samfélaginu er mikilvægt að við hlúum vel að hvort öðru og njótum fallega veðursins og sumarbirtunnar. Nokkur atriði sem gott er að hafa í huga: Bent er á að fólk eigi að gæta vel að hrein­læti, þvo hend­ur reglu­lega með sápu og nota hand­spritt. Forðast snert­ingu við augu, nef og munn. Hósta og hnerra í kreppt­an oln­boga eða í papp­ír þegar um kve­f­ein­kenni er að ræða. Forðast náið sam­neyti við ein­stak­linga með hósta og al­menn kve­f­ein­kenni. Sýna aðgát í um­gengni við al­genga snertifleti á fjöl­förn­um stöðum, s.s. hand­rið, lyftu­hnappa, snerti­skjái, greiðsluposa og hurðar­húna. Heilsa frek­ar með brosi en handa­bandi eða faðmlagi. Ef hægt er að skipuleggja fjarfundi er skynsamlegt að gera það. Nota síma og tölvupóst frekar en að ganga milli starfsstöðva, ef hægt er. Starfsmenn með undirliggjandi sjúkdóma og þeir sem eru viðkvæmir fyrir veirunni ættu að láta stjórnendur vita og kanna í samráði við þá möguleika á að draga úr [...]