Nýjast á Local Suðurnes

Neyðarstig virkjað á Keflavíkurflugvelli vegna bilunar í lendingarbúnaði flugvélar

Mynd: Landsbjörg - frá æfingu á Keflavíkurflugvelli.

Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli vegna flugvélar United Airlines sem var að koma inn til lendingar, með 164 farþega um borð, upp úr klukkan átta í morgun en lendingarbúnaður flugvélarinnar var í ólagi. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Flugvélin sem er af gerðinni Boeing 757-221 var á leið frá Newark-flugvelli í Bandaríkjunum hringsólaði yfir Faxaflóa í um tuttugu mínútur en kom svo inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli og lenti þar heilu og höldnu.

Björgunarsveitir, slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn og lögregla á öllu Suðvesturhorni landsins voru því sett í viðbragðsstöðu.