Nýjast á Local Suðurnes

Nesfiskur skoðar verklag við notkun gasbyssu eftir útkall sérsveitar lögreglu

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Sérsveit Ríkislögreglustjóra var kölluð út í morgun þegar tilkynng barst um skothvelli við golvöllinn í Leiru. Garðvegi var lokað frá Helguvík og leik- og grunnskólabörnum í Garði var haldið innandyra.

Samkvæmt tilkynningu Lögreglunnár á Suðurnesjum er málið þannig tilkomið að lögreglumenn sem voru að störfum í morgun á Garðvegi, vegna mannlausrar bifreiðar sem var illa staðsett í vegarkanti, urðu varir við skothvelli sem virtust koma frá fiskihjöllum þar skammt frá.

Þá segir í tilkynningu lögreglu að sérsveit Ríkislögreglustjóra hafi verið stödd á æfingarsvæði lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli og var óskað eftir aðkomu hennar. Í ljós kom að um var að ræða hvellbyssur, sem settar höfðu verið upp við fiskihjallana, í því skyni að fæla burtu vargfugl.

Hvellbyssurnar eru í eigu fiskvinnslufyrirtækisins Nesfisks og staðfesti Guðlaugur Kristófersson hjá Nesfiski í við fréttastofu RÚV að aðgerðir sérsveitar í morgun tengdust fiskþurrkun á hjöllum fyrirtækisins og að fyrirtækið muni skoða verklag við notkun á byssunum.

„Við erum með gasbyssur og búnir að vera með til margra ára. Ég setti hana í gang í gær vegna ágangs fugls. Það varð til þess að sérsveitin var kölluð út.“ Sagði Guðlaugur við RÚV.

Segir Guðlaugur það því hafa komið verulega á óvart þegar sérsveitin mætti á svæðið. „Þetta hefur ekki komið upp áður. Þetta kom verulega frá óvart. Ætli við munum ekki koma til með að skoða verklagið út frá þessu.“