Nemendur fá ókeypis skólamáltíðir
Vegna þeirra aðgerða sem gripið hefur til í grunnskólum og þeirra áhrifa sem þær hafa haft á framkvæmd skólamáltíða hafa Reykjanesbær og Skólamatur átt gott samtal.
Ákveðið hefur verið:
- að allir nemendur í grunnskólum fái einfalda máltíð á þeim dögum sem þeir eru í skólanum frá og með 23. mars og á meðan á takmörkun á skólahaldi stendur
- engir reikningar verða sendir út fyrir apríl eða á meðan á takmörkuninni stendur
- þeir reikningar sem foreldrar hafa greitt vegna áskrifta í mars verða endurreiknaðir frá og með 16. mars. Nánari útfærsla verður kynnt um leið og hún liggur fyrir
Það er því ekki þörf á því að segja upp áskrift hjá Skólamat vegna þessarar takmörkunar sem nú er á skólahaldi, segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ.
Skólamatur hefur unnið hörðum höndum að því að aðlaga sig að breyttum aðstæðum til þess að geta áfram boðið nemendum upp á hollan og fjölbreyttan mat. Matseðil fyrir næstu viku má finna á heimasíðu Skólamatar: www.skolamatur.is