Nemakort Strætó komin í sölu – Afgreiðsla getur tekið 10 daga
Nemakort fyrir nemendur með lögheimili á Suðurnesjum komin í sölu. Nemakortin gilda innan svæðis á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðið. Gildistími þeirra er ein önn.
Athygli er vakin á því að afgreiðsla kortanna getur tekið 7-10 daga. Upplýsingar um gjaldskrá og kaup er að finna á heimasíðu Strætó.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni straeto.is en þar má einnig finna Vetraráætlun Strætó á Suðurnesjum – 16. ágúst 2015 einnig má fá upplýsingar í síma 540 2700.