sudurnes.net
Nauðsynlega vantar að bæta samgöngur - Local Sudurnes
Fulltrúar frá Capacent hafa á undanförnum vikum og mánuðum hitt fulltrúa íbúa, starfsfólks, nefnda og ráða fyrir undirbúning stefnumótunar Reykjanesbæjar. Ungmennaráð Reykjanesbæjar hélt í höfuðstöðvar fyrirtækisins rétt fyrir jól til þess að fara í viðtal við starfsfólk. Fyrir fundinum lágu margvíslegar spurningar m.a. hverjir eru helstu styrk- og veikleikar og hvað mætti helst breytast í Reykjanesbæ. Það kom fram í máli fulltrúar ungmennaráðsins að þeir eru mjög ánægðir með flest allt í bæjarfélaginu og nefndu sérstaklega grunnskólana, félagslífið og íþróttastarfið. Það sem þeim fannst nauðsynlega vantar er að bæta samgöngur og mikil þörf er fyrir tómstundamiðstöð þar sem boðið væri upp á að geta farið í keilu og að skauta, ásamt fleiri skemmtilegri afþreyingu. Að fundi loknum var einmitt farið í keilu og ráðinu var boðið upp á Pizzu í Egilshöllinni. Meira frá SuðurnesjumRekstrarniðurstaða verður neikvæð og beiðnum um fjárhagsaðstoð mun fjölgaÓska eftir þátttakendum í rýnihóp vegna stefnumótunarvinnuFundað um uppbyggingu íþróttamannvirkja – Njarðvík vill ekki deila húsi með KeflavíkVildu fjármagna gervigrasvelli með sölu lóðaÞorsteinn hættir hjá Grindavíkurbæ – Ráðinn sveitarstjóri SkútustaðahreppsLeggja til að boðið verði upp á ókeypis tíðarvörur í grunnskólumÁhugaverð störf í boði hjá ReykjanesbæGáfu Reykjanesbæ 2000 andlitsgrímurLétta undir með 16-18 ára ungmennumKeilir kynnir flugnám – Boðið upp á [...]