sudurnes.net
Námurétthafar hirða stærstu bitana á Suðurnesjum - Milljarðar til ÍAV og Ístaks - Local Sudurnes
Stærstu verktakafyrirtæki landsins, svissnesska fyrirtækið ÍAV og Ístak, sem er í eigu danska fyrirtækisins Per Aarslef, hafa verið hlutskörpust í nær öllum stærstu útboðum sem snúa að jarðvinnu á Suðurnesjum undanfarin ár. Verksamningar fyrirtækjanna við Ísavia, Reykjanesbæ og Vegagerðina hljóða upp á milljarða króna. Fyrirtækin eru þau einu sem hafa rétt til vinnslu á jarðefnum á svæðinu og eru þannig í kjöraðstæðum þegar kemur að stórum útboðum sem krefjast mikils magns fyllingar- og burðarlagsefna. Rekstaraðili Keflavíkurflugvallar, Ísavia, hefur verið stærsti verkkaupinn á Suðurnesjum í jarðvinnuframkvæmdum undanfarin misseri, en samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu hafa farið fram útboð á sjö slíkum verkefnum undanfarin tvö ár. Af þessum sjö útboðum, sem hljóða upp á rúma níu milljarða króna hafa fyrirtækin tvö verið hlutskörpust fimm sinnum, en samtals hljóma verksamningar þessara tveggja fyrirtækja við Ísavia í jarðvinnu upp á tæplega átta milljarða króna. Þá varð ÍAV hlutskarpast í útboði um stærstu gatnaframkvæmdir í Reykjanesbæ hin síðari ár, við Flugvelli, sem boðin var út snemma á þessu ári og Ístak varð hlutskarpast í útboði Vegagerðarinnar um byggingu tveggja hringtorga á Reykjanesbraut, en bæði þessi verkefni byggjast að miklu leyti á miklum efnisflutningum úr námum fyrirtækjanna í Stapafelli. ÍAV hefur verið áberandi á verktakamarkaði á Suðurnesjasvæðinu frá því að fyrirtækið [...]