Nafn sjómannsins sem saknað er - Local Sudurnes
Sjómaðurinn sem saknað er af línuskipinu Sighvati GK-57 heitir Ekasit Thasaphong. Hann er fæddur 1980. Leit hefur enn engan árangur borið, en verður framhaldið á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vísir hf. sem send var fjölmiðlum að höfðu samráði við fjölskylduna, sem þakkar af alhug samúð og vinarþel samfélagsins. Ekasit kom ungur til Íslands og hefur búið í Grindavík ásamt eiginkonu og þremur börnum. Ekasit hefur lengst af starfað hjá Vísi hf, bæði til sjós og lands. Fjölskyldan öll hefur verið mjög virk í samfélaginu í Grindavík, sem er harmi slegið. Starfsfólk Vísis hf. þakkar öllum þeim, sem tekið hafa þátt í leitinni, bænir allra eru hjá fjölskyldu og ættingjum Ekasit Thasaphong. Segir í tilkynningunni. Meira frá SuðurnesjumLægstu systkynafslættir fyrir skóladagvistun í ReykjanesbæAndri Rúnar afgreiddi AkurnesingaFramkvæmdir við hringtorg á Reykjanesbraut hefjast á næstu dögumTveir erlendir leikmenn til NjarðvíkurVilja gera grindvíska togara umhverfisvænni með nýrri tækniFrá A-Ö: Suðurnesjaþingmenn lítið beitt sér fyrir svæðið – Flestir vilja á þing afturAndri og Linda best í GrindavíkTónlistarskóli Reykjanesbæjar stofnar barnakórHelga Bryndís heldur einleikstónleika í HljómahöllTveimur mönnum bjargað úr sjó við Leiru