Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi á Reykjanesbraut
Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Reykjanesbraut á mánudaginn hét Marinó Nordquist. Hann var fæddur árið 1979, búsettur í Reykjanesbæ, en ættaður frá Akureyri. Marinó var einhleypur og barnlaus en lætur eftir sig foreldra og yngri systur.
Banaslysið varð þegar tvær bifreiðir lentu í árekstri á Reykjanesbraut, skammt frá Rósaselstorgi við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ökumaður og farþegi í hinni bifreiðinni voru fluttir á Heilbrigðisstofnun til skoðunar.