Nýjast á Local Suðurnes

Næsta lægð á leiðinni – Sunnanslydda og rigning í kortunum

Heldur mun draga úr vindi í kvöld og í nótt, en næsta lægð er þó á leiðinni og má búast við töluverðu hvassviðri aftur með sunnanslyddu eða -rigningu á morgun auk hlýnandi veðurs, í bili. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Fram á gamlársdag verða áfram sviptingar í veðri en þá virðist loks koma stund milli stríða.

Veðurfræðingur á vakt er þó nokkuð bjartsýnn á að fínasta flugeldaveður verði á gamlárskvöld.

„Gott ef ekki verður komið hið ágætast flugeldaveður á gamlárskvöldi þ.a. hægt verður að kveðja árið með stæl.“ Segir í athugasemd veðurfræðings.