sudurnes.net
Náðist á myndbandsupptöku við að losa sig við fíkniefni - Local Sudurnes
Ferðalangur sem var á leið í flug til Alicante nýverið sást losa sig við poka með hvítu dufti í vopnaleit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Lögreglumönnum úr flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum var tilkynnt um málið. Á myndbandi úr upptökuvél í vopnaleitinn sást viðkomandi taka pokann úr tösku sinni og losa sig við hann undir vopnaleitarborðið. Lögregla hafði upp á aðilanum í fríhöfn flugstöðvarinnar og var tekin vettvangsskýrsla af viðkomandi áður en för úr landi var heimiluð. Þá þurfti lögregla að handtaka karlmann sem hafði ásamt þremur öðrum verið ölvaður og með ólæti í flugstöðinni. Hafði þeim verið meinað að fara í flug vegna ástands síns og því vildu þeir ekki una. Sá sem handtekinn var lét sýnu verst og sýndi hann af sér ógnandi hegðun. Hann var vistaður á lögreglustöð þar til að af honum rann. Meira frá SuðurnesjumValtur á fótum greiddi 157.500 króna sekt vegna ölvunarakstursÍ gæsluvarðhald eftir að hafa látið greipar sópa í fríhöfninniHælisleitandi fluttur á sjúkrahús eftir sjálfsvígstilraun á ÁsbrúPróflaus undir áhrifum fíkniefna lét ekki segjast og var handtekinn tvisvarFarþegum boðin áfallahjálp eftir að flugdólgur lét illum látum um borð í vél WOW-airMetinn óhæfur til að fara með flugvélLét sig hverfa með reyktan silung og laxÞarf að tilkynna [...]