sudurnes.net
Mótmæla hækkunum á bílastæðagjöldum við FLE - Local Sudurnes
Neytendasamtökin mótmæla hækkunum Isavia á bílastæðagjöldum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sem tilkynnt var um í morgun og krefjast þess að þær verði dregnar til baka eða verði mun minni en gert er ráð fyrir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum sem finna má í heild sinni hér fyrir neðan. Fram hefur komið að Isavia, sem m.a. sér um rekstur bílastæða við Leifsstöð, muni frá og með 1. apríl nk. hækka gjaldtöku mjög mikið, eða um allt að 117%. Isavia réttlætir þessa hækkun með fjölgun farþega. Væntanlega er þar átt við fjölgun erlendra ferðamanna hingað til lands. Neytendasamtökin minna á að þeir sem nota þessi bílastæði eru ekki erlendir ferðamenn heldur Íslendingar. Isavia hefur í dag einokun á bílastæðum við Leifsstöð og það er í krafti þeirrar einokunar sem Isavia treystir sér til að hækka verðið jafn mikið og nú er ráðgert. Neytendasamtökin mótmæla þessum hækkunum harðlega og krefjast þess að þær verði dregnar til baka en til vara að þær verði mun minni en gert er ráð fyrir. Meira frá SuðurnesjumAldrei meiri umferð – Um 20.000 ökutæki fara um Reykjanesbraut á sólarhringSigvaldi Arnar hvergi nærri hættur – Afhenti Umhyggju rúmar 2 milljónirÁhugaverð störf í boði hjá ReykjanesbæAtvinnuleysistölur í hæstu hæðumMistök [...]