Nýjast á Local Suðurnes

Morgunfundur Isavia – Kynna farþegaspá fyrir árið 2018

Isavia boðar til morgunfundar þriðjudaginn 28. nóvember næstkomandi klukkan 8:30 á Hilton Nordica. Skráning er í fullum gangi og útlit er fyrir að salurinn fyllist, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu og er fólki bent á að skrá sig sem fyrst.

Á fundinum verður kynnt farþegaspá Keflavíkurflugvallar fyrir árið 2018, rætt um mikilvægi flugtenginga fyrir þjóðina auk þess sem sérstök kynning verður á viðskiptahraðlinum Startup Tourism.

Boðið verður upp á kaffi og létta morgunhressingu.

DAGSKRÁ:

Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia opnar fundinn.

FARÞEGASPÁ 2018 
Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar.

HVER ER ÁVINNINGURINN AF TENGIFARÞEGUM?
Dr. Huginn Freyr Þorsteinsson, ráðgjafi hjá Aton.

STARTUP TOURISM VIÐSKIPTAHRAÐALLINN 
Ásta Kristín Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans.

Fyrirspurnir úr sal