Nýjast á Local Suðurnes

Mjög ölvaður ökumaður stöðvaður á 138 km hraða

Lögreglan á Suðurnesjum mældi ökutæki á 138 kílómetra hraða á Reykjanesbraut í fyrradag. Ökumaðurinn reyndist „greinilega mjög ölvaður“ þegar lögreglumenn á Suðurnesjum stöðvuðu för hans, segir í tilkynningu frá lögreglu. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.

Þá hafa nokkrir til viðbótar verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga. Sá sem hraðast ók mældist á 153 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Hans bíður 210 þúsund króna sekt og svipting ökuréttinda í einn mánuð, segir jafnframt í tilkynningu lögreglu.