Nýjast á Local Suðurnes

Minnst lesið á árinu: Fáir áhugasamir um kísilver, forsetahjón og slagsmálatölfræði í körfunni

Fréttir vekja mismikinn áhuga en þessar fimm hér fyrir neðan fengu ekki mjög mikla athygli lesenda Suðurnes.net á árinu sem nú er að líða – Það má bæta úr því með því að gefa þeim klikk hér fyrir neðan:

Fimmta minnst lesna fréttin var af rómantískari gerðinni:

Fyrrum lággjaldaflugfélagið WOW-air bauð farþegum sem heita Valentínus eða Valentína að ferja einn ferðafélaga frítt til New York á Valentínusardaginn.

Fjórða minnst lesna fréttin þetta árið var um áhugaverða tölfræði sem lesendum fannst greinilega ekkert sérstaklega áhugaverð:

Samtals hafa agamál tengd Keflavík og Njarðvík í körfuknattleik ratað 185 sinnum á borð aganefndar KKÍ frá því skráning á slíkum brotum hófst árið 1974.

Kókaínflóð um Keflavíkurflugvöll fékk ekki mikla athygli lesenda á árinu:

Kókaín fannst í ferðatösku manns sem var að koma frá Barcelona, auk þess sem hann var með fíkniefni í smelluláspoka í buxnavasa ofan í töskunni.

Forsetahjónin eru áhugaverðar persónur, en lesendur Suðurnessins nenntu ekkert að standa í því að skoða myndir frá heimsókn þeirra í Reykjanesbæinn – Næst minnst lesið á árinu:

Forsetahjónin, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid komu í opinbera heimsókn til Reykjanesbæjar 2. og 3. maí síðastliðinn í tilefni 25 ára afmælis Reykjanesbæjar.

Nokkrar fréttir voru birtar um blessað kísilverið – Þessi var minnst lesin á árinu:

Endurbætur á kísilverksmiðju Stakksbergs í Helguvík munu draga verulega úr mengun frá verksmiðjunni, þar á meðal lyktarmengun, í nærliggjandi íbúabyggð.